Medalia logo

Verð sem miðast við þína starfsemi

Engar tvær stofur eru eins og þess vegna er Medalia ekki selt á einu föstu verði. Verðið ræðst af tvennu: hvaða einingar kerfisins þú notar og hversu mikil notkunin er.

Einingarnar sem þú notar

Medalia er byggt upp úr einingum — sjúkraskrá, tímabókanir, Mínar síður skjólstæðinga, sjálfvirk verkflæði, matskvarðar og uppgjör við Sjúkratryggingar. Þú greiðir fyrir þær einingar sem stofan notar, hvorki meira né minna.

Umfang notkunar

Verðið tekur mið af því hversu mikið flæðir í gegnum kerfið — fjölda bókana, samskipta og gagna. Lítil stofa greiðir því ekki það sama og stór starfsemi með mörg stöðugildi.

Fáðu tilboð fyrir þína stofu

Bókaðu stutta kynningu og við förum yfir hvaða einingar henta þinni starfsemi og setjum saman tilboð í kjölfarið.