Lausnir

Sálfræðingar og félagsráðgjafar

Vottað sjúkraskrárkerfi með sjálfvirkri verkferlastýringu og Mínum síðum. Skjólstæðingar bóka, svara matskvörðum og undirrita sjálfir, án pappírsvinnu.

Innbyggð fjarviðtöl í sjúkraskránni

Áskoranirnar

Kannastu við þetta?

Þetta eru áskoranir sem sálfræðingar og félagsráðgjafar glíma við daglega

Handvirk skráning
Ertu enn að skrifa meðferðarnótur í Word eða á pappír? Það getur reynst erfitt að halda utan um sögu skjólstæðinga og uppfylla lögboðnar kröfur um skráningu.
Tímabókanir í gegnum tölvupóst
Endalaus samskipti fram og til baka til að finna tíma sem hentar báðum. Hætta er á að afbókanir og breytingar fari forgörðum.
Matskvarðar á pappír
Staðlaðir matskvarðar sem þarf að yfirfara og skora handvirkt. Tafsamt getur verið að fylgjast með framvindu yfir lengri tíma.
Reikningagerð og uppgjör
Handvirk reikningagerð og flókið uppgjör við Sjúkratryggingar sem tekur dýrmætan tíma frá faglegri vinnu.

Eitt kerfi fyrir meðferðina og reksturinn

Meðferðarnótur, bókanir, matskvarðar, verkferli, samskipti og uppgjör við Sjúkratryggingar, svona lítur það út að innan.

Allt um skjólstæðinginn á einum stað. Meðferðarnótur, matskvarðar og verkefni í ferli, sjúkraskráin er grunnurinn sem allt annað byggir á.

SB

Sigrún Björk

29 ára · kona

Áhættumat · lágt
YfirlitKomurSamtölVerkefniNóturMeira

Meðferðarnóta · í dag

Vistast sjálfkrafa

Sjötta viðtal. Minni kvíði í félagslegum aðstæðum, heimaverkefni unnin.

Mælingar

PHQ-9 · 7GAD-7 · 6
PHQ-99

Komur

Síðustu 3 mánuðir

Fjarviðtal · 6. viðtal

fim. 14:30 · Anna B.

Í dag

Viðtal · 5. viðtal

12. mar · nóta skráð

Símatími

26. feb · eftirfylgni

Verkefni í ferli

0 af 3 lokið

Senda PHQ-9 fyrir viðtalÍ bið
Meðferðarsamningur undirritaðurÍ bið
Uppgjör eftir viðtalÍ dag

Matskvarðar

PHQ-9

7 stig · 19. mar

Vægt

GAD-7

6 stig · 19. mar

Vægt

Áhættumat

Lágt · staðfest 5. mar

Lágt

Bókað án símtals. Skjólstæðingurinn velur tíma á Mínum síðum, dagskráin fyllist og áminningar fara sjálfkrafa út.

Vikan 9.–13. mars

31 bókanir
Mán9.
Þri10.
Mið11.
Fim12.
Fös13.
08:0009:0010:0011:00
Viðtal · Jóna08:00
Fyrsta viðtal · Emil09:30
Fjarviðtal · Sigrún08:30
Laus tími
Hópmeðferð08:00
Símatími10:00
Viðtal · Kári09:00
Parameðferð · Anna08:00
Fjarviðtal · Óli09:30

Svarað áður en viðtalið byrjar. PHQ-9, GAD-7 og aðrir kvarðar berast fyrir viðtal, stigin reiknast sjálfkrafa og birtast í sjúkraskránni.

Matskvarði · PHQ-9

Sigrún Björk · svarað fyrir komu

Í útfyllingu

1.Lítill áhugi eða ánægja af því að gera hluti?

Alls ekkiNokkra dagaMeira en helming dagaNánast á hverjum degi

2.Verið niðurdregin(n), döpur/dapur eða vonlaus?

Alls ekkiNokkra dagaMeira en helming dagaNánast á hverjum degi

3.Átt erfitt með svefn eða sofið of mikið?

Alls ekkiNokkra dagaMeira en helming dagaNánast á hverjum degi

0 af 9 svarað

7 stig · Væg einkenni

Kerfið vinnur á milli koma. Matskvarðar, meðferðarsamningar og reikningar fara sjálfkrafa af stað, hvert skref sést í rauntíma.

Verkferli · Nýr skjólstæðingur

Sigrún Björk · í gangi

Ræstist við bókun

Tími bókaður

Lokið

Skjólstæðingur bókaði á Mínum síðum

PHQ-9 og GAD-7 sendir

SjálfvirktLokið

Svarað á Mínum síðum, stigin skráð í sjúkraskrá

Meðferðarsamningur

SjálfvirktÍ gangi

Undirritaður með rafrænum skilríkjum

Reikningur eftir viðtal

SjálfvirktÍ bið

Stofnast sjálfkrafa og greiðist á Mínum síðum

Ekkert viðkvæmt í tölvupósti. Skilaboð, niðurstöður og skjöl fara dulkóðuð um gáttina, beint úr sjúkraskránni.

Skilaboð

2
Dulkóðað í gáttinni

Leita í skilaboðum…

HL

Halldóra Laxness

09:41

Get ég fært tímann minn…

EG

Emil Guðnason

Í gær

Takk fyrir síðast!

Sara Óladóttir

Mán

Niðurstöður komnar?

HL

Halldóra Laxness

Auðkennd með rafrænum skilríkjum

Í dag
Sæl Kristín, get ég fært tímann minn á fimmtudag yfir á föstudag?

09:41

Sæl Halldóra! Ekkert mál, þú getur fært hann sjálf á Mínum síðum, eða ég geri það fyrir þig.

Séð 09:43

Frábært, ég græja það. Takk!

Skrifa skilaboð…

Greitt fyrir komuna. Reikningur stofnast eftir viðtalið, skjólstæðingurinn greiðir á Mínum síðum og uppgjörið fer sjálfkrafa til SÍ og í bókhaldið.

Uppgjör · mars

1.–31. mars · 128 reikningar

Sent til SÍ sjálfkrafa

Innheimt í mars

1.248.400 kr.

+12,4% frá febrúar

Útistandandi

8.400 kr.

1 reikningur í innheimtu

Sjálfvirkt uppgjör

98%

án handavinnu

HL

Halldóra Laxness

Viðtal · 12. mar

12.500 kr.

Greitt
EG

Emil Guðnason

Fyrsta viðtal · 12. mar

9.800 kr.

Greitt

Sara Óladóttir

Viðtal · 11. mar

8.400 kr.

Í innheimtu
KJ

Kári Jónsson

Parameðferð · 11. mar

12.500 kr.

Sent til SÍ

Payday-bókhald uppfært sjálfkrafa

Öll uppgjör

Meðferðarnótur og framvinda

Þú talar, nótan skrifast. Framvindan mælist.

Þú klárar skráninguna í viðtalinu sjálfu: nóta, greining og áætlun á einum stað. Matskvarðarnir raðast sjálfkrafa á tímalínu svo þú sérð strax hvort meðferðin skilar árangri.

Meðferðarnóta · 6. viðtal

Sigrún Björk · 19. mars

Vistast sjálfkrafa
Sniðmát: HAM-viðtal

Sjötta viðtal. Sigrún lýsir minni kvíða í félagslegum aðstæðum og hefur unnið heimaverkefnin úr síðasta viðtali. PHQ-9 lækkar úr 9 í 7.

Talritun í gangi…

01:24
F41.1 · Almenn kvíðaröskunFramvinda deilt á Mínum síðum

PHQ-9 á tímalínu

Sigrún Björk · 6 viðtöl

Undir klínískum mörkum
PHQ-9 stig
091827Væg einkenni undir 1071. viðtal2.3.4.5.6. viðtal

Næsti matskvarði fer sjálfkrafa fyrir sjöunda viðtal. Stigin skrást beint á tímalínuna

Talritun beint í nótuna
Textinn birtist jafnóðum meðan þú talar og hljóðupptakan er aldrei geymd.
Sniðmát og ICD-greiningar
Sniðmát fyrir fyrsta viðtal, HAM og eftirfylgni, greiningarkóðar valdir beint í nótunni.
reMarkable í viðtalinu
Handskrifaðar nótur sækjast inn í sjúkraskrána og umritast í texta.
Matskvarðar á tímalínu
PHQ-9, GAD-7 og aðrir kvarðar safnast sjálfkrafa á tímalínu milli viðtala.

Hvað þarf sjúkraskrárkerfi að uppfylla?

Sjálfsafgreiðsla skjólstæðinga

Mínar síður, örugg gátt skjólstæðinga

Skjólstæðingar bóka, svara matskvörðum, undirrita meðferðarsamning og skoða eigin framvindu, beint úr símanum með rafrænum skilríkjum.

Bóka, breyta og afbóka
Skjólstæðingar panta tíma sjálfir á þeim tímum sem þú opnar.
Svara matskvörðum
PHQ-9 og GAD-7 berast fyrir viðtal og stigin skrást beint í sjúkraskrána.
Greiða reikninga
Reikningar greiðast í gáttinni strax. Minni innheimta í síma.
Undirrita meðferðarsamning
Samþykki og samningar undirritaðir rafrænt, án pappírs.
Skoða framvindu
Framvinduskýrslur og niðurstöður matskvarða deilt á öruggan hátt.
Örugg samskipti
Skilaboð fara dulkóðuð um gáttina, aldrei í tölvupósti.
Heimaverkefni og fræðsla
Æfingar og fræðsluefni milli viðtala, á einum stað.
Mæta í fjarviðtal
Skjólstæðingur tengist fjarviðtalinu beint úr gáttinni, án hlekkja eða forrita.

Prófaðu gáttina: bókaðu kynninguna í gegnum hana

09:41
SB

Mínar síður

Sigrún Björk

Rafræn skilríki

Næsti tími

Viðtal · fim. 14:30

Anna · breyta eða afbóka

Verkefni til að klára

3

Svara PHQ-9

Fyrir viðtal · 2 mín

Undirrita meðferðarsamning

Rafræn skilríki

Greiða reikning

14.900 kr. · Straumur

Framvindan mín

Deilt af sálfræðingi

PHQ-9

18 → 7 stig · 6 viðtöl

Batnar

Heimaverkefni

Svefnvenjur · skila fyrir viðtal

Skoða
Innbyggð fjarheilbrigðisþjónusta

Fjarviðtalið er hluti af sjúkraskránni

Skjólstæðingur tengist af Mínum síðum með rafrænum skilríkjum, án Zoom eða fundarhlekks. Nótan skrifast í sama kerfi.

Engir deilanlegir fundarhlekkir
Aðeins auðkenndir notendur geta tengst, fundurinn er hluti af tímanum.
Rafræn skilríki
Báðir aðilar auðkenna sig, eins og fyrirmæli landlæknis krefjast.
Dulkóðun frá enda til enda
Hljóð og mynd dulkóðuð í vafranum, enginn þriðji aðili sér innihaldið.
Nótur í sama kerfi
Tíminn, viðtalið og nótan á einum stað, ekkert afritast úr Zoom eða Teams.

Fjarviðtal í gangi

24:12

Dulkóðað

SB

Sigrún

AB

Anna

Ljúka

Nótan vistast í sjúkraskrána

Kerfið

Allt sem þú þarft, á einum stað

Medalia sameinar öll þau verkfæri sem sálfræðingar og félagsráðgjafar þurfa í einu vottuðu sjúkraskrárkerfi.

Meðferðarnótur
Skipulagðar nótur fyrir hvern og einn tíma sem uppfylla kröfur embættis landlæknis. Allt sem skráð er situr á sjúkraskránni, ekki í Word eða á pappír.
reMarkable
Skrifaðu með pennanum í viðtalinu. Tengdu reMarkable-spjaldtölvuna við Medalia, sæktu nóturnar inn í sjúkraskrána og umritaðu handskriftina í texta, án þess að slá þær inn aftur.
Innbyggð fjarviðtöl
Eigin fjarheilbrigðislausn Medalia. Skjólstæðingur tengist beint af Mínum síðum, án fundarhlekks eða annars forrits. Innskráning með rafrænum skilríkjum og dulkóðun frá enda til enda.
Mínar síður skjólstæðinga
Örugg sjálfsafgreiðsla: skjólstæðingar bóka og afbóka, svara matskvörðum, greiða, undirrita samninga og skoða framvindu, með rafrænum skilríkjum.
Staðlaðir matskvarðar
Sendu PHQ-9, GAD-7 og aðra matskvarða rafrænt. Sjálfvirkur útreikningur og myndræn framsetning á árangri yfir tíma.
Reikningar og Sjúkratryggingar
Sjálfvirk reikningagerð og rafrænt uppgjör við Sjúkratryggingar Íslands. Minna umstang í bókhaldinu gefur þér meiri tíma aflögu.
Sjálfvirk verkferlastýring
Kerfið sendir matskvarða, úthlutar eftirfylgni og minnir á næsta skref. Þú einbeitir þér að viðtalinu. Medalia sér um að ekkert gleymist á milli lota.

Algengar spurningar

Er Medalia vottað sjúkraskrárkerfi fyrir sálfræðinga?

Já. Medalia er vottað rafrænt sjúkraskrárkerfi sem uppfyllir kröfur embættis landlæknis og lög um sjúkraskrár nr. 55/2009. Kerfið er sérstaklega hannað með viðkvæmar meðferðarnótur í huga.

Styður Medalia staðlaða matskvarða eins og PHQ-9 og GAD-7?

Já. Þú sendir PHQ-9, GAD-7 og aðra staðlaða matskvarða rafrænt til skjólstæðinga. Medalia reiknar niðurstöður sjálfkrafa og sýnir framvindu myndrænt yfir tíma.

Sér Medalia um uppgjör við Sjúkratryggingar Íslands?

Já. Medalia býr til reikninga sjálfkrafa og sér um rafrænt uppgjör við Sjúkratryggingar Íslands, svo bókhaldið tekur mun styttri tíma.

Geta skjólstæðingar bókað tíma og sinnt sínum málum sjálfir?

Já. Á Mínum síðum bóka, breyta og afbóka skjólstæðingar tíma, svara matskvörðum, greiða, undirrita samninga og skoða framvindu. Innskráning er með rafrænum skilríkjum.

Get ég tengt reMarkable við Medalia?

Já. Hver fagaðili tengir sína reMarkable-spjaldtölvu við Medalia. Nótur sem þú skrifar í viðtalinu eru sóttar inn í sjúkraskrá skjólstæðingsins, og hægt er að umrita handskriftina í texta.

Hversu öruggar eru meðferðarnótur í Medalia?

Meðferðarnótur eru dulkóðaðar og varðar með strangri aðgangsstýringu. Innskráning er með rafrænum skilríkjum og allur aðgangur að sjúkraskrá er skráður, eins og lög gera kröfu um.

Get ég flutt eldri gögn yfir í Medalia?

Já. Við aðstoðum við að flytja gögn úr eldri kerfum, Word-skjölum eða öðru formi yfir í Medalia svo saga skjólstæðinga haldist á einum stað.

Viltu einfalda starfsemina?

Sjáðu hvernig vottað sjúkraskrárkerfi með sjálfvirkri verkferlastýringu og Mínum síðum getur sparað þér tíma, svo þú getir einbeitt þér að skjólstæðingunum.