Væntanlegt

Nýir skjólstæðingar finna stofuna þína

Þjónustutorg Medalia: fólk finnur stofur eftir fagi og svæði, sér næsta lausa tíma og bókar beint í dagatalið þitt.

Þú þarft engan annan farveg

Torgið er innbyggt í Medalia. Engin tvískráning, sömu bókunarreglur og á Mínum síðum, og bókun af torginu verður venjulegur tími í dagatalinu.

1. desember 2026

Sjúkraskráin verður stafræn hvort sem er.

Frá 1. desember 2026 er skylt að færa sjúkraskrá í vottað stafrænt kerfi. Medalia er slíkt kerfi, og með torginu er það líka leiðin sem nýir skjólstæðingar finna stofuna.

Það sem fólk sér

Stofan, þjónustan með verði, sérfræðingarnir og næsti lausi tími.

Það sem þú ræður

Hvaða þjónusta er bókanleg, hvernig stofan er kynnt og hvort hún birtist yfirhöfuð.

Það sem birtist aldrei

Sjúkraskrá, skjólstæðingar, dagatal og vaktir. Bókun krefst rafrænna skilríkja.

Vertu með frá fyrsta degi

Skráningin er opin núna undir Stillingar → Þjónustutorg.

  1. 1

    Veldu þjónustu

    Hakaðu við það sem hver sem er má bóka.

  2. 2

    Kynntu stofuna

    Flokkar, stutt lýsing og mynd.

  3. 3

    Forskoðaðu og birtu

    Sjáðu síðuna eins og hún verður. Kveiktu þegar þú ert tilbúin.

Flokkar á torginu

Stofa velur sína flokka.

Vantar þinn flokk? Láttu okkur vita
  • Sálfræðingar
  • Læknar
  • Lýtalækningar
  • Sjúkraþjálfarar
  • Kírópraktorar
  • Osteópatar
  • Hjúkrunarfræðingar
  • Ljósmæður
  • Talmeinafræðingar
  • Iðjuþjálfar
  • Næringarfræðingar
  • Fjölskyldumeðferð
  • Tannlæknar
  • Fótaaðgerðir
  • Annað

Spurningar um torgið?

Við hjálpum þér að stilla skráninguna og látum vita þegar opnunardagur liggur fyrir.