Endurhæfing
Skipulögð endurhæfingarprógrömm: hópaverkefni, stöðluð matstæki, mæting, sjálfsafgreiðslustöð og uppgjör við Sjúkratryggingar, í einu vottuðu sjúkraskrárkerfi.
Kannastu við þetta?
Þetta eru áskoranir sem endurhæfingarstofur glíma við daglega
- Prógrömm í Excel og tölvupósti
- Hópar, lotur og verkefni eru dreifð á milli töflureikna, pappírs og innhólfa. Erfitt er að sjá hver á að gera hvað, og hvort það var gert.
- Sömu listar sendir aftur og aftur
- Stöðluð matstæki eru send handvirkt. Skjólstæðingar fá sama listann þótt þeir hafi nýlega svarað, og teymið eyðir tíma í að elta uppi svör.
- Mæting á pappír
- Innritun og mæting er skráð á lista við dyrnar. Gögnin rata seint, eða alls ekki, inn í sjúkraskrá og uppgjör.
- Lítið yfirlit yfir árangur hópsins
- Einstaklingsniðurstöður eru til, en erfitt er að sjá framvindu hópsins eftir upphafs-, mið- og lokamælingu.
Eitt kerfi fyrir prógrammið allt
Sjúkraskrá, hópaáætlun, matstæki, verkferli, samskipti og uppgjör við Sjúkratryggingar, svona lítur það út að innan.
Allt um skjólstæðinginn á einum stað. Nótur, matstæki, mæting og prógrammið í ferli, sjúkraskráin er grunnurinn sem allt annað byggir á.
Guðrún Pálsdóttir
Sjúkraþjálfari
Sara Óladóttir
58 ára · kona
010194-2029
Framvindunóta · í dag
Vistast sjálfkrafaSjötta vika. Gengur 430 m á sex mínútum, mæting 92%.
Mælingar
Komur
Síðustu 3 mánuðir
Hópþjálfun · Þrek
fim. 14:30 · Guðrún P.
Sjúkraþjálfun
12. mar · nóta skráð
Innritunarmat
5. feb · matstæki skráð
Verkefni í ferli
0 af 3 lokið
Prógrammið
Þrekþjálfun
3 × í viku · hópur A
Jafnvægisæfingar
2 × í viku · frá viku 6
Hópfræðsla
Vika 7 · næring
Hópar og tímar á einum stað. Þjálfun, fræðsla og endurmat raðast á vikuáætlun, þátttakendur sjá sína tíma á Mínum síðum.
Vikan 9.–13. mars
Svarað áður en vikan byrjar. Stöðluð matstæki berast sjálfkrafa á réttum vikum, stigin reiknast og birtast í sjúkraskránni.
Matstæki · WHODAS 2.0
Sara Óladóttir · svarað fyrir komu
1.Erfiðleikar við að standa í 30 mínútur?
2.Erfiðleikar við að sinna heimilisstörfum?
3.Erfiðleikar við að einbeita sér í 10 mínútur?
0 af 12 svarað
9 af 36 · Vægir erfiðleikarPrógrammið keyrir sig sjálft. Innritun, matstæki, mæting og endurmat fara sjálfkrafa af stað, hvert skref sést í rauntíma.
Prógramm · Hjartaendurhæfing
Sara Óladóttir · í gangi
Innritun í prógramm
LokiðÞátttakandi skráður í 8 vikna hóp
Matstæki send
SjálfvirktLokiðWHODAS svarað á Mínum síðum, stigin skráð
Mæting skráð
SjálfvirktÍ gangiSjálfsafgreiðslustöð skráir komu í hópþjálfun
Endurmat í viku 8
SjálfvirktÍ biðGöngupróf og matstæki bókast sjálfkrafa
Ekkert viðkvæmt í tölvupósti. Skilaboð, niðurstöður og skjöl fara dulkóðuð um gáttina, beint úr sjúkraskránni.
Skilaboð
2Leita í skilaboðum…
Halldóra Laxness
09:41
Get ég fært tímann minn…
Emil Guðnason
Í gær
Takk fyrir síðast!
Sara Óladóttir
Mán
Niðurstöður komnar?
Halldóra Laxness
Auðkennd með rafrænum skilríkjum
09:41
Séð 09:43
Skrifa skilaboð…
Greitt fyrir vikuna. Reikningar stofnast eftir hverja komu og uppgjörið fer sjálfkrafa til SÍ og í bókhaldið.
Uppgjör · mars
1.–31. mars · 128 reikningar
Innheimt í mars
1.248.400 kr.
+12,4% frá febrúar
Útistandandi
8.400 kr.
1 reikningur í innheimtu
Sjálfvirkt uppgjör
98%
án handavinnu
Halldóra Laxness
Hópþjálfun · 12. mar
12.500 kr.
GreittEmil Guðnason
Innritunarmat · 12. mar
9.800 kr.
GreittSara Óladóttir
Sjúkraþjálfun · 11. mar
8.400 kr.
Í innheimtuKári Jónsson
Hópfræðsla · 11. mar
12.500 kr.
Sent til SÍPayday-bókhald uppfært sjálfkrafa
Öll uppgjör
Þú talar, nótan skrifast. Árangurinn mælist.
Þú klárar skráninguna í þjálfuninni sjálfri: nóta, matstæki og áætlun á einum stað. Göngupróf og matstæki raðast sjálfkrafa á tímalínu svo þú sérð strax hvernig hverjum og einum miðar.
Framvindunóta · Vika 6
Sara Óladóttir · 19. mars
Sjötta vika í endurhæfingu. Sara gengur 430 metra á sex mínútum og mæting í hópþjálfun er 92%. Þrek og úthald hafa aukist jafnt.
Talritun í gangi…
Sex mínútna göngupróf
Sara Óladóttir · 6 vikur
Næsta göngupróf er skráð í prógrammið í viku 8. Niðurstaðan skráist beint á tímalínuna
- Talritun beint í nótuna
- Textinn birtist jafnóðum meðan þú talar og hljóðupptakan er aldrei geymd.
- Sniðmát fyrir prógrömm
- Innritun, vikunótur og endurmat með sniðmátum sem passa prógramminu.
- Mæting í nótunni
- Sjálfsafgreiðslustöðin skráir komuna og mætingin birtist í sjúkraskránni.
- Mælingar á tímalínu
- Göngupróf, matstæki og aðrar mælingar safnast sjálfkrafa á tímalínu milli vikna.
Mínar síður, örugg gátt þátttakenda
Þátttakendur sjá prógrammið sitt, svara matstækjum, skrá komu og greiða, beint úr símanum með rafrænum skilríkjum.
- Sjá vikuáætlunina
- Þjálfun, fræðsla og endurmat prógrammsins, alltaf uppfært í gáttinni.
- Svara matstækjum
- Stöðluð matstæki berast á réttum vikum og stigin skrást beint í sjúkraskrána.
- Greiða reikninga
- Reikningar greiðast í gáttinni strax. Minni innheimta í síma.
- Undirrita samninga
- Samþykki og samningar undirritaðir rafrænt, án pappírs.
- Skrá komu
- Sjálfsafgreiðslustöð eða síminn skráir mætingu í hópþjálfun.
- Örugg samskipti
- Skilaboð fara dulkóðuð um gáttina, aldrei í tölvupósti.
- Skoða framvindu
- Göngupróf og matstæki deilt á öruggan hátt.
- Fræðsluefni
- Fræðsla prógrammsins á einum stað, ekki í tölvupósti.
Mínar síður
Sara Óladóttir
Næsti tími
Viðtal · fim. 14:30
Guðrún · breyta eða afbóka
Verkefni til að klára
3Svara WHODAS 2.0
Fyrir viku 6 · 3 mín
Undirrita samþykki
Þátttaka í prógrammi
Greiða reikning
5.400 kr. · Straumur
Prógrammið mitt
Vika 6 af 8
Þrekþjálfun
fim. 14:30 · hópur A
Jafnvægisæfingar
þri. 10:00 · gert
Allt sem þú þarft, á einum stað
Medalia sameinar öll þau verkfæri sem endurhæfingarstofur þurfa í einu vottuðu sjúkraskrárkerfi.
- Skipulögð prógrömm
- Endurhæfingarprógrömm með þátttakendum, lotum og hlutverkum. Úthlutaðu verkefni eða matskvarða á hópinn í einni aðgerð, hver fær sitt eigið verkefni.
- Stöðluð matstæki í verkferlum
- Matstæki eru send á réttum tímapunktum með verkferlum. Ef skjólstæðingurinn hefur nýlega svarað sama lista er verkefninu sleppt, engin tvíverkun.
- Hópaáætlun
- Lotur og hópatímar í einni áætlun, ekki bara einstaklingsbókanir. Teymið sér dagskrána; þátttakendur sjá sína lotu á Mínum síðum.
- Mætingarskráning
- Skráðu mætingu á hverja lotu. Gögnin sitja á prógramminu og nýtast bæði í klínísku yfirliti og uppgjöri.
- Sjálfsafgreiðslustöð skráir komu
- Skjólstæðingur slær inn kennitölu á sjálfsafgreiðslustöðinni og mæting skráist á lotuna í dag. Minna álag á móttöku, nákvæmari skráning.
- Uppgjör við Sjúkratryggingar
- Gjaldaliðir á prógrammi og rafrænt uppgjör við Sjúkratryggingar Íslands, byggt á mætingu og þjónustu, ekki á handvirkum töflureiknum.
Algengar spurningar
Hvað er endurhæfingarprógramm í Medalia?
Prógramm er skipulagður hópur með þátttakendum, lotum og verkefnum. Þú úthlutar verkefnum og matskvörðum á hópinn, skráir mætingu og fylgist með árangri, allt í vottuðu sjúkraskrárkerfi.
Hvernig virka stöðluð matstæki í endurhæfingu?
Matstæki eru send með verkferlum á réttum tímapunktum, til dæmis við upphaf, á miðri leið og við lok. Ef skjólstæðingurinn hefur þegar svarað sama lista innan tilgreinds tímabils er verkefninu sleppt, svo enginn fái listann tvisvar að óþörfu.
Get ég séð árangur hópsins, ekki bara einstaklinga?
Já. Niðurstöður raðast eftir merki mælingar, til dæmis upphafsmæling og lokamæling. Þú sérð meðaltal hópsins og feril hvers þátttakanda.
Hvernig er mæting skráð?
Mæting er skráð á hverja lotu í hópaáætluninni. Á sjálfsafgreiðslustöð slær skjólstæðingurinn inn kennitölu og mæting skráist á lotuna í dag.
Sér Medalia um uppgjör við Sjúkratryggingar Íslands?
Já. Prógrömm tengjast gjaldaliðum Sjúkratrygginga og rafrænt uppgjör byggir á mætingu og þjónustu, ekki á handvirkri úrvinnslu.
Geta þátttakendur séð sín verkefni á Mínum síðum?
Já. Þátttakendur sjá lotur, verkefni og matstæki á Mínum síðum, skrá sig inn með rafrænum skilríkjum og klára sín mál þar.
Fróðleikur
Greinar um kröfurnar til sjúkraskráa og daglegan rekstur.
Viltu stafræna endurhæfinguna?
Sjáðu hvernig prógrömm, matstæki, mæting og uppgjör við Sjúkratryggingar geta unnið saman í einu kerfi.