Innra eftirlit í sama kerfi og sjúkraskráin
Gæðakerfi Medalia byggir eftirlitsáætlun stofunnar á reglugerð nr. 879/2026. Eftirlit berst ábyrgðaraðila sem verkefni, frávik verða að úrbótum og atvik eru skráð beint af síðu skjólstæðings.
Eftirlit · vikulega
Frestur í dag
Hitastig í lyfjakæli
Ábyrgðaraðili: Þóra K. · Heilsustofan Ösp
Lægst
3,1 °C
Hæst
—
Viðmið 2–8 °C
- Kælir læstur og merktur
- Engin útrunnin lyf í kælinum
Skráðu hæsta gildið
StaðfestaÚrbætur
Gæðakerfi
Reglugerðin gildir líka um litlar stofur
Reglugerð nr. 879/2026 um innra eftirlit tók gildi 8. ágúst 2026 og gildir um alla veitendur heilbrigðisþjónustu, líka sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsfólk. Eigi síðar en 1. janúar 2027 þurfa verklag og verkþættir innra eftirlits að vera komin í notkun.
- Ábyrgðaraðili og tíðni fyrir hvern þátt eftirlitsins
- Niðurstöður skráðar og frávikum fylgt eftir með úrbótum
- Ellefu svið, frá lagakorti og áhættuþáttum til atvika og kvartana
- Niðurstöður teknar saman og kynntar stjórnendum
Frá eftirlitsáætlun til samantektar
Gæðakerfið þekkir starfsfólkið og skjólstæðingana sem eru þegar í Medalia. Þegar starfsmaður hættir færast eftirlitsþættir hans og úrbætur sjálfkrafa til gæðastjóra, eða til ábyrgðarmanns ef enginn gæðastjóri er skráður.
- Eftirlitsáætlun úr sniðmáti
- Áætlunin byggir á sniðmáti Medalia og svörum stofunnar, til dæmis um hvort lyf séu geymd á stofunni. Hver eftirlitsþáttur fær gátlista, ábyrgðaraðila og tíðni, og fyrir svið sem á ekki við er skráð hvers vegna.
- Eftirlit berst sem verkefni
- Viku fyrir frest birtist eftirlitið á verkefnalista ábyrgðaraðila. Farið er yfir gátlistann, mælingar skráðar og eftirlitinu lokið með staðfestingu. Næsta eftirlit stofnast sjálfkrafa.
- Frávik verða að úrbótum
- Mæling utan viðmiðs eða athugasemd í gátlista verður að úrbót með ábyrgðaraðila og fresti. Úrbót lokast ekki fyrr en skráð er hvað var gert og hvernig árangur var staðfestur.
- Tækjaskrá með QR-merkjum
- Lækningatæki og annar búnaður með raðnúmeri, staðsetningu, vottunum og viðhaldsáætlun. Starfsfólk skannar merkið á tækinu til að skrá eftirlit eða tilkynna bilun, og tækjalista má líma inn úr töflureikni.
- Verklag og gæðahandbók
- Verklagsreglur úr sniðmátum Medalia eða úr gæðahandbók stofunnar, sem má flytja inn úr Word- eða PDF-skjali. Þegar regla er samþykkt getur starfsfólkið fengið verkefni um að lesa hana og staðfesta lesturinn.
- Atvik, kvartanir og ábendingar
- Atvik eru skráð beint af síðu skjólstæðings. Kvartanir, ábendingar og hrós fá ábyrgðaraðila og svarfrest, og kvörtun sem varðar tiltekinn starfsmann er falin fyrir honum.
- Samantektir fyrir stjórnendur og landlækni
- Ársfjórðungsleg samantekt fyrir stjórnendur og hálfsársyfirlit atvika fyrir landlækni verða til úr skráningunum og vistast sem PDF í skjalasafni stofunnar.
- Yfirlit og áminningar
- Yfirlitið sýnir hvað þarfnast athygli, fresti næstu 30 daga og hvaða hlutar reglugerðarinnar eru í áætlun. Ábyrgðaraðili fær tölvupóst þegar frestur nálgast, og dragist eftirlit fær gæðastjóri að vita og síðan ábyrgðarmaður.
Hvernig eftirlitið er sett upp
- 1
Ábyrgðin skráð
Æðsti stjórnandi stofunnar er skráður ábyrgðarmaður. Gæðastjóri getur haft daglega umsjón með eftirlitinu og fær áminningarnar.
- 2
Átta spurningar um starfsemina
Svörin ráða hvaða eftirlitsþættir og heimildir eiga við. Hvert svið reglugerðarinnar fær eftirlitsþátt eða skýringu á því hvers vegna það á ekki við.
- 3
Eftirlitið hefst
Fyrstu eftirlitin dreifast á næstu mánuði og berast ábyrgðaraðilum sem verkefni. Á lagakortinu sést hvaða eftirlitsþættir fylgja hverri heimild eftir, til dæmis lyfjalögum eða samningi við Sjúkratryggingar.
Gervigreind án aðgangs að sjúkraskrá
- Gervigreind getur samið drög að gátlistum, verklagsreglum, áhættuþáttum, samantektum og svörum við kvörtunum
- Hún fær ekki aðgang að sjúkraskrá
- Þegar hún semur svar við kvörtun fær hún erindið og innri athugasemdir, án kennitalna og án nafna úr sjúkraskrá
- Kennitölur eru fjarlægðar úr gæðahandbók áður en hún er unnin
- Úrvinnslan fer fram innan Evrópu
- Drögin þarf að yfirfara og samþykkja áður en þau eru notuð
Algengar spurningar
Gildir reglugerð nr. 879/2026 um litlar stofur?
Já. Reglugerðin gildir um alla veitendur heilbrigðisþjónustu, líka litlar stofur og sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsfólk. Umfang eftirlitsins tekur mið af starfseminni og áhættu hennar, og þáttum sem eiga ekki við má sleppa með skýringu.
Hvenær þarf innra eftirlitið að vera komið í notkun?
Reglugerðin tók gildi 8. ágúst 2026. Eigi síðar en 1. janúar 2027 þurfa verklag og verkþættir innra eftirlits að liggja fyrir og vera komin í notkun.
Nýtist gæðahandbókin sem stofan á nú þegar?
Já. Gæðahandbók má flytja inn úr Word- eða PDF-skjali, svo framarlega sem hægt er að velja og afrita textann í henni. Úr henni verða til drög að verklagsreglum sem þarf að yfirfara og samþykkja, og það sem vantar má sækja í sniðmát Medalia.
Sendir Medalia hálfsársyfirlitið til landlæknis?
Nei, stofan sendir það sjálf. Yfirlitið verður til úr atvikaskránni og vistast sem PDF-skjal í skjalasafni stofunnar. Í því eru aðeins tölur, engin nöfn og engar lýsingar. Skiladagar eru 1. mars og 1. september.
Eru gögn um skjólstæðinga send í gervigreind?
Gervigreindin í gæðakerfinu fær ekki aðgang að sjúkraskrá. Oftast vinnur hún aðeins með upplýsingar um starfsemina sjálfa, til dæmis heiti eftirlitsþáttar eða tölur úr samantekt. Þegar hún semur drög að svari við kvörtun fær hún erindið og innri athugasemdir, en kennitölur eru fjarlægðar og nöfn úr sjúkraskrá eru ekki send. Kennitölur eru líka fjarlægðar úr gæðahandbók sem flutt er inn. Úrvinnslan fer fram innan Evrópu.
Styður gæðakerfið ISO 9001 eða ISO 7101?
Stofa sem vinnur eftir ISO 9001 eða ISO 7101 getur haldið utan um kröfur staðalsins í gæðakerfinu, meðal annars stöðu hverrar greinar staðalsins, skjalastýringu, innri úttektir, rýni stjórnenda og kvörðun tækja. Vottunin sjálf fer fram hjá vottunaraðila.
Sér kerfið um innra eftirlitið fyrir stofuna?
Kerfið heldur utan um eftirlitið, minnir á það og tekur niðurstöðurnar saman. Stofan þarf sjálf að laga verklag og gátlista að starfseminni, framkvæma eftirlitið, ljúka úrbótum og kynna niðurstöðurnar stjórnendum.
Viltu sjá innra eftirlitið í Medalia?
Bókaðu kynningu og við sýnum þér hvernig eftirlitsáætlun fyrir stofuna þína er sett upp og hvernig eftirliti og úrbótum er fylgt eftir.