Vefsíða stofunnar, beintengd Medalia
Þjónustur, starfsfólk og lausir tímar koma úr kerfinu. Skjólstæðingar bóka beint í dagatalið og fyrirspurnir af vefnum berast í Erindi.
heilsustofanosp.is
Heilsustofan Ösp
Sjúkraþjálfun og sálfræðiþjónusta á Akureyri
Næsti lausi tími
Í dag 14:30 · Sjúkraþjálfun
BókaÞjónusta
Sjúkraþjálfun
45 mín · laus tími í dag
Sálfræðiviðtal
50 mín · laus tími á morgun
Heilsufarsmat fyrirtækja
Ekki bókað á netinu
Nýjustu greinar
Fimm æfingar við bakverkjum
Grein · 12. nóv.
Senda fyrirspurn
Dagatal · í dag
Medalia
Af hverju vefurinn á heima í sama kerfi og bókanirnar
Þegar vefurinn stendur einn og sér þarf að breyta öllu tvisvar: verðinu í kerfinu og svo aftur á vefnum. Vefsíða stofunnar les þjónusturnar, starfsfólkið og lausu tímana beint úr Medalia.
- Bókað beint í dagatalið
- Bókunarhnappar og lausir tímar á vefnum opna bókun Medalia. Skjólstæðingur velur tíma og bókunin fer beint í dagatal stofunnar.
- Síða fyrir hverja þjónustu
- Hver þjónusta getur fengið eigin síðu. Þjónustur sem eru ekki bókaðar á netinu, til dæmis aðgerðir, geta líka verið á vefnum.
- Fyrirspurnir berast í Erindi
- „Senda fyrirspurn“ á vefnum verður að erindi í Medalia. Starfsfólk sér nafn og netfang eða símanúmer og svarar í tölvupósti eða síma.
- Greinar
- Skrifaðu fréttir og fróðleik og birtu hverja grein þegar hún er tilbúin. Nýjustu greinarnar geta birst á hvaða síðu vefsins sem er.
- Á fleiri tungumálum
- Bættu við ensku eða öðrum tungumálum, allt að fimm til viðbótar. Gervigreind getur þýtt textann og þjónustur birtast með þeim þýðingum sem stofan á þegar í Medalia.
- Á léni stofunnar
- Vefurinn opnast á léni stofunnar þegar það er tengt. Medalia sýnir hvaða færslur þarf að setja í DNS og athugar sjálfkrafa hvenær þær eru komnar.
Hvernig vefurinn verður til
- 1
Byrjað á núverandi vef
Eigi stofan vef les Medalia hann við uppsetningu og nýtir myndir, merki, texta og algengar spurningar. Gamlar slóðir vísa á nýju síðurnar.
- 2
Gervigreind skrifar fyrstu drögin
Textinn byggir á lýsingu stofunnar sjálfrar. Þjónustur, verð og starfsfólk koma alltaf úr Medalia.
- 3
Yfirfarið og gefið út
Þú lagar vefinn í ritlinum, skoðar forskoðun og gefur hann út þegar hann er tilbúinn. Hver útgáfa er geymd og eldri útgáfu má sækja aftur.
Leitarvélar lesa vefinn, mælingar bíða samþykkis
- Skipulögð gögn (JSON-LD) um stofuna, þjónusturnar og algengar spurningar
- Vefkort (sitemap.xml) og llms.txt sem uppfærast með vefnum
- Hvert tungumál merkt svo leitarvélar sýni rétta útgáfu
- Gamlar slóðir vísa á nýju síðurnar með 301-tilvísun
- Tag Manager, Google Analytics og Meta Pixel virkjast aðeins eftir samþykki gests
- Meta fær aðeins lén vefsins, aldrei slóð síðunnar
Algengar spurningar
Þarf stofan að eiga vef fyrir?
Nei. Medalia setur upp vef úr því sem er í kerfinu og lýsingu stofunnar. Eigi stofan vef fyrir les Medalia hann við uppsetningu og nýtir myndir, merki og texta af honum.
Hvað verður um slóðirnar á gamla vefnum?
Medalia finnur slóðir gamla vefsins við uppsetningu og vísar þeim á samsvarandi síður á nýja vefnum. Í ritlinum má breyta tilvísunum, eyða þeim og bæta nýjum við.
Geta skjólstæðingar bókað tíma beint af vefnum?
Já. Lausir tímar og bókunarhnappar á vefnum koma úr Medalia og bókunin fer beint í dagatal stofunnar. Þjónustur sem eru ekki bókaðar á netinu geta samt verið á vefnum.
Getur gervigreindin breytt vefnum?
Já, ef stofan notar Aðstoð, gervigreindina í Medalia. Þú biður um breytingu, til dæmis nýja spurningu í algengum spurningum, og Aðstoð sýnir tillöguna á vefnum. Ekkert breytist fyrr en þú samþykkir hana og Aðstoð gefur vefinn aldrei út sjálf.
Hvaða mælingar má tengja við vefinn?
Google Tag Manager, Google Analytics 4 og Meta Pixel. Þær virkjast aðeins á léni stofunnar og aðeins eftir að gesturinn hefur samþykkt vafrakökur. Bókun á vefnum er send til Google Analytics og Meta án heitis þjónustunnar eða verðs.
Viltu sjá vefsíðu stofunnar í Medalia?
Bókaðu kynningu og við sýnum þér hvernig vefurinn, bókanirnar og Erindi vinna saman.