Lausnir

Sjúkraskrárkerfi fyrir fótaaðgerðafræðinga

Vottað sjúkraskrárkerfi fyrir fótaaðgerðastofur sem uppfyllir kröfur um stafræna sjúkraskrá. Skjólstæðingar bóka og greiða sjálfir á Mínum síðum, myndir úr símanum fara beint í sjúkraskrána og fastir skjólstæðingar fá endurteknar bókanir og boð um næstu komu.

Áskoranirnar

Kannastu við þetta?

Þetta eru áskoranir sem fótaaðgerðafræðingar glíma við daglega

Spjaldskrá og Excel
Meðferðarsagan er á spjöldum í möppu eða í Excel-skjali. Frá og með 1. desember 2026 er skylt að færa sjúkraskrá í stafrænt sjúkraskrárkerfi og spjöldin duga þá ekki lengur.
Myndirnar í símanum
Myndir af nöglum, siggi og sárum liggja í myndasafni símans innan um fjölskyldumyndirnar. Erfitt er að finna þær aftur og bera saman milli koma.
Bókað á einum stað, skráð á öðrum
Tímarnir eru í bókunarkerfi og nóturnar annars staðar. Sami skjólstæðingur er skráður tvisvar og saga hans dreifist á milli staða.
Fastir skjólstæðingar
Margir koma á sex vikna fresti. Að muna eftir hverjum og einum, hringja og minna á tímann tekur tíma frá meðferðinni sjálfri.

Eitt kerfi fyrir stofuna, frá bókun til greiðslu

Meðferðarnótur, myndir, bókanir, áminningar, samskipti og greiðslur, svona lítur það út að innan.

Allt um skjólstæðinginn á einum stað. Nótur, myndir og fyrri komur í tímaröð, með sykursýki og blóðþynningu efst. Sjúkraskráin er grunnurinn sem allt annað byggir á.

MS

Margrét Sif

69 ára · kona

Sykursýki · Blóðþynning
YfirlitKomurSamtölVerkefniNóturMeira

Meðferðarnóta · í dag

Vistast sjálfkrafa

Regluleg fótaaðgerð. Neglur þynntar, sigg og líkþorn fjarlægð, spöng stillt.

Mælingar

Verkur · 1 af 103 myndir teknar
Verkur í tá2

Komur

Síðustu 3 mánuðir

Fótaaðgerð · 6. koma

fim. 14:30 · Ásdís K.

Í dag

Fótaaðgerð · 5. koma

5. feb · nóta og myndir

Fótaskoðun sykursjúkra

18. des · árleg skoðun

Verkefni í ferli

0 af 3 lokið

Senda spurningar fyrir komuÍ bið
Leiðbeiningar sendarÍ bið
Boð um næsta tímaÍ dag

Meðferðir í gangi

Spöng · stóratá vinstri

Stillt á 6 vikna fresti

Virk

Þrýstiléttandi hlíf · 5. tá

Sílikonhlíf

Virk

Fótaskoðun sykursjúkra

Árleg · næst í desember

Á dagskrá

Bókað án símtals. Skjólstæðingurinn velur tíma á Mínum síðum, dagskráin fyllist og áminningar fara sjálfkrafa út.

Vikan 9.–13. mars

31 bókanir
Mán9.
Þri10.
Mið11.
Fim12.
Fös13.
08:0009:0010:0011:00
Fótaaðgerð · Jóna08:00
Spangarmeðferð · Emil09:30
Fótaskoðun · Margrét08:30
Laus tími
Vörtumeðferð · Kári08:00
Hlífðarmeðferð · Anna10:00
Fótaaðgerð · Óli09:00
Fótaskoðun · Guðrún08:00
Spangarmeðferð · Dagur09:30

Svarað áður en tíminn byrjar. Spurningar um sár, dofa og lyfjabreytingar berast fyrir komuna og svörin bíða í sjúkraskránni.

Spurningar · Fyrir komu

Margrét Sif · svarað fyrir komu

Í útfyllingu

1.Hefur þú fengið sár eða blöðru á fót frá síðustu komu?

NeiJá

2.Finnur þú fyrir dofa eða sviða í fótunum?

NeiJá

3.Hefur lyfjanotkun þín breyst, til dæmis notkun blóðþynningarlyfja?

NeiJá

0 af 3 svarað

1 atriði til skoðunar · Dofi

Kerfið vinnur á milli koma. Spurningar, áminningar og boð um næsta tíma fara sjálfkrafa af stað, hvert skref sést í rauntíma.

Verkferli · Regluleg fótaaðgerð

Margrét Sif · í gangi

Ræstist við bókun

Tími bókaður

Lokið

Endurtekin bókun á sex vikna fresti

Spurningar sendar

SjálfvirktLokið

Svarað á Mínum síðum, svörin skráð í sjúkraskrá

Áminning fyrir komu

SjálfvirktÍ gangi

SMS sent 24 klst. fyrir tímann

Reikningur eftir komu

SjálfvirktÍ bið

Stofnast sjálfkrafa og greiðist á Mínum síðum

Ekkert viðkvæmt í tölvupósti. Skilaboð, niðurstöður og skjöl fara dulkóðuð um gáttina, beint úr sjúkraskránni.

Skilaboð

2
Dulkóðað í gáttinni

Leita í skilaboðum…

HL

Halldóra Laxness

09:41

Get ég fært tímann minn…

EG

Emil Guðnason

Í gær

Takk fyrir síðast!

SÓ

Sara Óladóttir

Mán

Niðurstöður komnar?

HL

Halldóra Laxness

Auðkennd með rafrænum skilríkjum

Í dag
Sæl Kristín, get ég fært tímann minn á fimmtudag yfir á föstudag?

09:41

Sæl Halldóra! Ekkert mál, þú getur fært hann sjálf á Mínum síðum, eða ég geri það fyrir þig.

Séð 09:43

Frábært, ég græja það. Takk!

Skrifa skilaboð…

Greitt fyrir komuna. Reikningur stofnast eftir komuna, skjólstæðingurinn greiðir á Mínum síðum og greiðslan fer sjálfkrafa í bókhaldið.

Uppgjör · mars

1.–31. mars · 128 reikningar

Reikningar stofnaðir sjálfkrafa

Innheimt í mars

1.248.400 kr.

+12,4% frá febrúar

Útistandandi

8.400 kr.

1 reikningur í innheimtu

Sjálfvirkt uppgjör

98%

án handavinnu

HL

Halldóra Laxness

Fótaaðgerð · 12. mar

12.500 kr.

Greitt
EG

Emil Guðnason

Spangarmeðferð · 12. mar

9.800 kr.

Greitt
SÓ

Sara Óladóttir

Fótaskoðun · 11. mar

8.400 kr.

Í innheimtu
KJ

Kári Jónsson

Vörtumeðferð · 11. mar

12.500 kr.

Bíður greiðslu

Payday-bókhald uppfært sjálfkrafa

Öll uppgjör

Meðferðarnótur og myndir

Nótan og myndirnar klárast í komunni.

Þú skráir á meðan þú vinnur: ástæða komu, skoðun, meðferð og áætlun á einum stað. Myndir úr símanum lenda í sömu nótu og bíða þín þegar skjólstæðingurinn kemur aftur.

Meðferðarnóta · Fótaaðgerð

Margrét Sif · 19. mars

Vistast sjálfkrafa
Sniðmát: Fótaaðgerð

Regluleg fótaaðgerð. Neglur á stórutám þykkar, þynntar. Sigg undir tábergi hægra megin fjarlægt og líkþorn á 5. tá tekið. Spöng á stórutá vinstra megin stillt, verkur 1 af 10.

Talritun í gangi…

01:24
L60.0 · Inngróin nöglLeiðbeiningar um fótaumhirðu sendar á Mínar síður

Verkur í tá á tímalínu

Margrét Sif · spangarmeðferð · 6 komur

Nær verkjalaus
Verkur (0–10)
0246810Markmið undir 211. koma2.3.4.5.6. koma

Verkur er skráður í hverri komu. Svörin skrást beint á tímalínuna

Myndir með símanum
Skannaðu QR-kóðann, taktu myndina og hún birtist í nótunni.
Talritun beint í nótuna
Textinn birtist jafnóðum meðan þú talar og hljóðupptakan er aldrei geymd.
Sniðmát fyrir hverja meðferð
Fótaaðgerð, fótaskoðun sykursjúkra eða spangarmeðferð. Hvert sniðmát hefur sín svið og fyrri svör eru við höndina.
Fyrri komur við höndina
Nótur og myndir fyrri koma eru í sjúkraskránni, svo þú sérð hvað var gert síðast.

Hvað þarf sjúkraskrárkerfi að uppfylla?

Sjálfsafgreiðsla skjólstæðinga

Mínar síður, örugg gátt skjólstæðinga

Skjólstæðingar bóka næsta tíma, svara spurningum fyrir komu, greiða og sjá leiðbeiningar um fótaumhirðu, beint úr símanum með rafrænum skilríkjum. SMS-áminningar berast líka þeim sem nota ekki Mínar síður.

Bóka, breyta og afbóka
Skjólstæðingar panta tíma sjálfir á þeim tímum sem þú opnar og fá staðfestingu og SMS-áminningu fyrir tímann.
Svara spurningum fyrir komu
Spurningar um sár, dofa og lyf berast fyrir tímann og svörin skrást beint í sjúkraskrána.
Leiðbeiningar um fótaumhirðu
Leiðbeiningar og fræðsluefni frá stofunni, á einum stað í símanum.
Greiða reikninga
Reikningurinn berst í SMS og greiðist í gáttinni. Minni innheimta á stofunni.
Undirrita samþykki
Samþykki undirritað rafrænt, án pappírs.
Boð um næsta tíma
Þegar kemur að næstu komu berst boð um að bóka, í SMS og tölvupósti.
Örugg samskipti
Skilaboð fara dulkóðuð um gáttina, aldrei í tölvupósti.

Sjáðu Mínar síður í kynningunni

09:41
MS

Mínar síður

Margrét Sif

Rafræn skilríki

Næsti tími

Fótaaðgerð · fim. 14:30

Ásdís · breyta eða afbóka

Verkefni til að klára

3

Svara spurningum fyrir komu

Fyrir tímann · 1 mín

Undirrita samþykki

Upplýst samþykki

Greiða reikning

12.900 kr. · Straumur

Fæturnir mínir

Frá fótaaðgerðafræðingi

Fótaumhirða heima

Rakakrem · daglega

Í gangi

Verkur í tá

7 → 1 · 6 komur

Batnar
Kerfið

Allt sem þú þarft, á einum stað

Medalia sameinar öll þau verkfæri sem fótaaðgerðafræðingar þurfa í einu vottuðu sjúkraskrárkerfi.

Meðferðarnótur
Sniðmát sem þú setur upp fyrir fótaaðgerð, fótaskoðun sykursjúkra eða spangarmeðferð, með ástæðu komu, skoðun, meðferð og áætlun. Nóturnar uppfylla kröfur embættis landlæknis og þú getur talað þær inn.
Myndir beint úr símanum
Skannaðu QR-kóða í komunni og taktu myndir á símann. Þær birtast í nótunni og vistast með komunni og fara aldrei í myndasafn símans. Ekkert app og engin innskráning í símanum.
Saga og áhættuþættir
Sykursýki og blóðþynning eru skráð sem aðvaranir og ofnæmi sérstaklega. Hvort tveggja sést efst í sjúkraskránni og fylgir skjólstæðingnum milli koma. Fyrri komur, nótur og myndir eru á einum stað.
Dagatal og netbókun
Dagatal fyrir alla starfsmenn, og fastur skjólstæðingur fær endurtekna bókun, til dæmis á sex vikna fresti, í einu skrefi. Skjólstæðingar bóka, breyta og afbóka líka sjálfir á vef stofunnar eða á Mínum síðum.
Reikningar, greiðslur og gjafabréf
Reikningur verður til eftir komuna og berst skjólstæðingnum í SMS og tölvupósti til að greiða á Mínum síðum. Krem, hlífar og aðrar vörur fara á sama reikning, og allt skilar sér í bókhaldið. Stofan getur líka selt gjafabréf, sem skjólstæðingar nota við bókun eða til að greiða reikning.
Aðgangsstýring
Hver starfsmaður skráir sig inn með rafrænum skilríkjum og fær aðgang eftir hlutverki. Móttakan sér dagatalið og bókar, en sjúkraskráin er lokuð henni. Allar uppflettingar í sjúkraskrá eru skráðar.
Áminningar og verkferlastýring
Skjólstæðingar fá staðfestingu við bókun og SMS-áminningu fyrir tímann. Kerfið sendir spurningar fyrir komu, leiðbeiningar eftir hana og boð um að bóka næstu komu, svo færri tímar falla niður.
Vefsíða stofunnar
Medalia setur upp vef stofunnar úr þjónustum, starfsfólki og lausum tímum sem eru þegar í kerfinu. Skjólstæðingar bóka af vefnum beint í dagatalið.Nánar um vefsíðu stofunnar
Innra eftirlit
Samkvæmt reglugerð nr. 879/2026 þarf innra eftirlit að vera komið í notkun eigi síðar en 1. janúar 2027, líka á litlum stofum. Í gæðakerfi Medalia fá tækin á stofunni viðhaldsáætlun og QR-merki, og frávik verða að úrbótum með ábyrgðaraðila og fresti.Nánar um gæðakerfið

Algengar spurningar

Er Medalia vottað sjúkraskrárkerfi fyrir fótaaðgerðafræðinga?

Já. Medalia er vottað rafrænt sjúkraskrárkerfi hjá embætti landlæknis, uppfyllir lög um sjúkraskrár nr. 55/2009 og reglugerð nr. 550/2015 og hefur farið í gegnum tvær óháðar öryggisúttektir. Fótaaðgerðafræðingar eru löggild heilbrigðisstétt og bera fulla skráningarskyldu.

Þarf fótaaðgerðastofa að vera með rafræna sjúkraskrá frá og með 1. desember 2026?

Já. Frá og með 1. desember 2026 er skylt að færa sjúkraskrá í stafrænt sjúkraskrárkerfi og spjaldskrá eða Excel duga þá ekki lengur. Við hjálpum þér að setja upp meðferðir, opnunartíma og sniðmát svo skiptin gangi hratt fyrir sig.

Hvað kostar Medalia fyrir fótaaðgerðastofu?

Medalia er fast mánaðargjald eftir fjölda notenda (starfsmanna, ekki skjólstæðinga), engin binding. Yfirfærsla á eldri gögnum er ekki innifalin; við gerum tilboð eftir umfangi. Bókaðu kynningu og þú færð tilboð sem miðast við þína stofu.

Get ég tekið myndir af fótum og fundið þær aftur í næstu komu?

Já. Þú skannar QR-kóða í komunni með símanum eða spjaldtölvunni og tekur myndirnar þar. Þær birtast í nótunni, vistast með komunni og fara aldrei í myndasafn símans. Ekkert app þarf og engin innskráning í símanum. Í næstu komu eru fyrri nótur og myndir í sjúkraskránni.

Hentar Medalia fyrir eftirlit með fótum sykursjúkra?

Já. Sykursýki og blóðþynning eru skráð sem aðvaranir efst í sjúkraskránni, skoðunin er skráð í sama sniðmáti ár eftir ár og myndir fylgja komunni. Skjólstæðingurinn getur svarað spurningum um sár, dofa og lyfjabreytingar á Mínum síðum fyrir komu.

Get ég bókað fasta skjólstæðinga fram í tímann?

Já. Með endurtekinni bókun bókar þú fastan skjólstæðing til dæmis á sex vikna fresti í einu skrefi. Ef tími rekst á annað stingur kerfið upp á öðrum tíma í staðinn.

Sendir Medalia SMS-áminningar?

Já, í nafni stofunnar. Skjólstæðingar fá staðfestingu þegar tími er bókaður og SMS-áminningu og tölvupóst fyrir tímann, og þú ræður textanum og tímasetningunni. Þegar kemur að næstu komu fá þeir boð um að bóka, svo færri tímar falla niður.

Hvað ef skjólstæðingur er ekki með rafræn skilríki?

Þú bókar tímann fyrir hann og skráir komuna í Medalia eins og venjulega, og hann fær SMS-áminningu þótt hann noti ekki Mínar síður. Hann getur greitt á stofunni og þú merkir reikninginn greiddan. Rafræn skilríki þarf aðeins til að skrá sig inn á Mínar síður, til dæmis til að bóka sjálfur eða greiða þar.

Geta skjólstæðingar bókað sjálfir á netinu?

Já. Skjólstæðingar bóka, breyta og afbóka sjálfir á Mínum síðum eða í bókunarglugga á vef stofunnar, á þeim tímum sem þú opnar fyrir bókanir.

Getur móttakan bókað tíma án þess að sjá sjúkraskrána?

Já. Starfsfólk í móttöku fær hlutverkið Móttaka: það sér dagatalið og bókar tíma, en sjúkraskráin er lokuð því. Hver starfsmaður skráir sig inn með eigin aðgangi og rafrænum skilríkjum.

Get ég selt krem, hlífar og aðrar vörur í gegnum kerfið?

Já. Vörur úr verðlista stofunnar fara á reikning komunnar með meðferðinni, svo skjólstæðingurinn greiðir allt í einu á Mínum síðum.

Fæ ég aðstoð fljótt ef eitthvað kemur upp á?

Já. Medalia er íslenskt fyrirtæki og þú færð aðstoð á íslensku beint frá fólkinu sem smíðar kerfið. Þú nærð í okkur á medalia@medalia.is ef eitthvað kemur upp á eða spurningar vakna.

Hversu öruggar eru upplýsingarnar í Medalia?

Sjúkraskráin og myndirnar eru dulkóðaðar og varðar með strangri aðgangsstýringu. Innskráning er með rafrænum skilríkjum og allur aðgangur að sjúkraskrá er skráður, eins og lög gera kröfu um. Sjúkraskrárgögn eru hýst í Frankfurt innan EES og afrituð reglulega.

Get ég flutt eldri gögn yfir í Medalia?

Já. Við getum flutt gögn úr eldri kerfum, Excel-skjölum eða öðru formi yfir í Medalia svo saga skjólstæðinga haldist á einum stað. Yfirfærslan er ekki innifalin í mánaðargjaldinu; við gerum tilboð eftir umfangi.

Er stofan komin með stafræna sjúkraskrá?

Bókaðu kynningu og sjáðu hvernig Medalia nýtist á þinni stofu. Við hjálpum þér að setja upp meðferðir, opnunartíma og sniðmát svo stofan komist fljótt af stað.